Við verðum með bás á Aqua-Ice, ráðstefnu Lagarlífs í Hörpu 29.–30. september. Kíktu við, allir velkomnir! Bókaðu spjall

Landeldi

Fóðurkerfi og stýringar

Helland Silosystem og Dynamic FishEye eru sjálfstæð fyrirtæki og vinna hvort með sínum viðskiptavinum. Þú getur því tekið fóðurkerfið eitt, stýringarnar einar eða hvort tveggja samþætt frá byrjun.

Þrjár leiðir

Fóðurkerfið

Fóðursíló, fóðurflutningur og skömmtun frá Helland Silosystem, tengd þeim stýringum sem þú notar nú þegar.

Passar ef stýringarnar eru þegar valdar.

Stýringarnar

Fóðurstýring, dælulausnir, vöktun vatnsgæða og SCADA-stjórnkerfi frá Dynamic FishEye ofan á fóðurkerfi frá öðrum framleiðanda.

Passar ef fóðurkerfið er þegar komið.

Hvort tveggja

Fóðurkerfi og stýringar hönnuð saman, þannig að skömmtun, pillustærð og fóðurmæling tala við SCADA strax við gangsetningu.

Passar í nýjum áfanga eða í endurbyggingu.

Skilin milli vélbúnaðar og stýringa

Verkefni fara helst úrskeiðis á skilunum milli vélbúnaðar og stýringa. Það er ódýrara að ákveða þau snemma en að rífa þau upp eftir gangsetningu.

Skilin milli Helland Silosystem og Dynamic FishEye í fóðurlínuFóðursíló, fóðurflutningur og skömmtun mynda vélbúnaðinn. Ofan á honum liggur stýri- og SCADA-lagið sem tengist hverjum hluta. Kerin tilheyra stöðinni sjálfri.Stýringar, SCADA-stjórnkerfi, vöktun vatnsgæðafóðrun, skömmtun, skráning, vöktunDynamic FishEyeFóðursílófóðurgeymslaFóðurflutningurblásari, skrúfaSkömmtunmæling á fóðriKer og eldistöðin sjálfHelland Silosystem

Verkefni

Stöðvar þar sem þessi búnaður er í uppsetningu eða rekstri.

Samherji Fiskeldi

Reykjanesi

Eldisgarðarnir: fóðurkerfi, SCADA-stjórnkerfi og OT-innviðir, netkerfið í kringum stýringarnar. Verkefnið þar sem fyrirtækin tvö hönnuðu fóðrun og stýringar saman frá byrjun.

Dynamic FishEye + Helland Silosystem

Lerøy

Noregi

Þrjár landeldisstöðvar uppfærðar: Troll, Bjørsvika og Belsvik. SCADA-stjórnkerfi og fóðurstýring.

Dynamic FishEye

Hima Seafood

Rjukan í Noregi

Nákvæmnisfóðrun í landeldi á regnbogasilungi: sjálfvirk skömmtun, stjórn á pillustærð og fóðurmæling.

Dynamic FishEye

Kvarøy Arctic

Noregi

Sjálfvirk fóðrun afhent í heild: fóðurstýring og innviðirnir í kringum hana.

Dynamic FishEye

Ellingsen Seafood

Noregi

Seiðastöð: fóðurkerfi með fullri samþættingu við SCADA-stjórnkerfi stöðvarinnar.

Dynamic FishEye

Nordic Halibut

Torjulvågen í Noregi

Lúðueldi á landi. Fóðurstýring frá Dynamic FishEye. Frá Helland Silosystem: fimm sekkjatæmarar, þrjár flutningslínur, 80 lokar og 80 sjálfvirkir fóðrarar.

Dynamic FishEye · Helland Silosystem

SalMar

Tjuin við Þrándheimsfjörð

Stærsta seiðastöð heims: áfylling á fóðursíló, vigtun og sjálfvirkir fóðrarar. Stærsta einstaka pöntun í sögu Helland.

Helland Silosystem

Salmon Evolution

Indre Harøy í Noregi

Annar áfangi 18.000 tonna landeldisstöðvar: hringflutningslínur, 1.000 lítra sjálfvirkir fóðrarar og sekkjatæmarar fyrir áfyllingu sílóanna.

Helland Silosystem

Nordlaks Smolt

Innhavet í Noregi

Fjögur 53 m³ fóðursíló með loftflutningi, fyllt úr tankbíl eða stórsekkjum.

Helland Silosystem

Laxey

Vestmannaeyjum

Fóðursíló og fóðurflutningur frá Helland Silosystem í fóðurkerfi landeldisstöðvarinnar.

Helland Silosystem

Fleiri afhendingar

Dynamic FishEye: Grytåga Settefisk, Skretting, EFC Aquaculture, Seafood Legacy.

Helland Silosystem: Salten Smolt, Mowi Haukå, Mowi Flekkefjord, Grieg Seafood, Bremnes Seashore, Fredrikstad Seafood, Tytlandsvik Aqua, Helgeland Smolt, Vikane Settefisk, Erko Seafood.

Tvö fyrirtæki, tvö svið

Næsta skref

Við förum yfir aðstæðurnar í eldisstöðinni þinni og hvaða leið passar. Tuttugu mínútur á fjarfundi duga til að byrja með.

Hafa samband