Persónuvernd
Gagnsæi og persónuvernd eru okkur grundvallaratriði.
Vefurinn setur engar vefkökur á gesti. Til að sjá hvaða efni er lesið notum við Vercel Analytics, vefgreiningarþjónustu án vefkaka sem telur heimsóknir á einstakar síður í samanlögðum tölum, og heimsóknateljara eTronica ehf. (telja.etron.is). Teljarinn skráir síðuna, vefinn sem vísaði á hana, land, gerð tækis og vafra. Hvorugt setur vefkökur eða vistar neitt í vafranum þínum, IP-tala er ekki geymd og auðkenni gests breytist á hverjum sólarhring, svo einstakir gestir eru ekki raktir. Lyklar í tilboðs- og póstlistatenglum eru teknir úr slóðinni áður en hún er send. Tilboðslistinn sem þú setur saman er aðeins geymdur í vafranum þínum (localStorage) og berst okkur ekki fyrr en þú sendir beiðnina. Myndbönd á vöru- og framleiðendasíðum hlaðast frá YouTube (Google) aðeins ef þú smellir á þau. Myndin á myndbandaspjaldinu kemur frá okkar eigin vefþjóni, svo Google fær engar upplýsingar um þig fyrr en þú smellir. Eina vefkakan á fiskar.is er innskráningarkaka starfsfólks og samstarfsaðila á market.fiskar.is.
Persónuupplýsingum er aðeins safnað þegar þú skráir þig á fréttabréfið eða sendir okkur beiðni um tilboð. Fyrir fréttabréfið geymum við netfangið, tungumálið sem þú valdir, hvenær þú skráðir þig og hvenær þú staðfestir skráninguna með tenglinum sem við sendum á netfangið. Þegar þú staðfestir berst tilkynning með netfanginu þínu í pósthólfið fiskar@fiskar.is. Óstaðfestum skráningum er eytt 30 dögum eftir síðasta staðfestingarpóst. Með beiðni um tilboð geymum við nafn, netfang og, ef þú gefur þau upp, fyrirtæki, kennitölu og símanúmer, ásamt skilaboðum þínum og vörunum sem beðið var um. Samþykkir þú tilboð á vefnum skráum við nafnið sem þú slærð inn og hvenær. Athugasemd sem þú lætur fylgja svari þínu, hvort sem þú samþykkir eða hafnar, er geymd með tilboðinu og send okkur. Við skráum líka hvenær tilboðssíðan var fyrst opnuð. Til að verjast misnotkun formanna geymum við í allt að tvo sólarhringa lykla sem eru reiknaðir með leynilykli úr IP-tölu sendanda og úr netfanginu sem slegið var inn, aldrei töluna eða netfangið sjálft.
Upplýsingarnar eru eingöngu notaðar til að svara beiðninni, gera tilboð og fylgja viðskiptunum eftir. Netfang á fréttabréfslista er aðeins notað til að senda fréttabréfið og þú getur afskráð þig hvenær sem er með því að senda okkur tölvupóst. Netfanginu er þá eytt af listanum.
Upplýsingarnar eru geymdar í gagnagrunni vefsins í Frankfurt og aðeins starfsfólk FSK ehf. hefur aðgang að þeim. Beiðnir og tilboð eru geymd eins lengi og þörf er á vegna viðskiptanna og bókhalds.
Upplýsingum er aldrei deilt með þriðja aðila í markaðslegum tilgangi. Vinnsluaðilar sem vinna þær eingöngu fyrir okkar hönd eru Vercel (hýsing vefsins), Neon (gagnagrunnur), Resend (tölvupóstþjónustan sem sendir tilkynningar og tilboð), Microsoft (pósthólfið fiskar@fiskar.is, sem tekur við beiðnum um tilboð) og eTronica ehf. (heimsóknateljari). Vercel, Neon, Resend og Microsoft eru bandarísk fyrirtæki, svo upplýsingar geta farið út fyrir Evrópska efnahagssvæðið; um það gilda vinnslusamningar þeirra. Smellir þú á myndband fær Google IP-tölu þína samkvæmt eigin skilmálum.
Samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd átt þú rétt á aðgangi að upplýsingum um þig, leiðréttingu og eyðingu þeirra, og getur beint kvörtun til Persónuverndar. Ábyrgðaraðili er FSK ehf., kt. 690726-1300.
Verði stefnunni breytt í framtíðinni birtast breytingarnar á þessari síðu. Síðast breytt 15. nóvember 2026.
Fiskar.is, FSK ehf. · Síðumúla 1, 108 Reykjavík · +354 790 0505 · fiskar@fiskar.is
