Obscape
Obscape-legufæri úr Dyneema, án akkeris
Festibúnaður hannaður fyrir öldubaujur Obscape: keðja úr ryðfríu stáli, Dyneema-lína og lóð og flot í línu. Akkeri fylgir ekki.

Holland
Þráðlausar mælistöðvar með sólarrafhlöðum
Obscape framleiðir þráðlaus tæki til umhverfismælinga í rauntíma. PTM-einingin (Power & Telemetry Module) er hagkvæm, harðgerð og þráðlaus með innbyggðum sólarrafhlöðum og farsímamótaldi. Á PTM-grunninum byggja m.a. veðurstöð, vatnshæðarmælir, myndavélar sem taka myndir með reglulegu millibili (time-lapse), regnmælir, CT-stöð (leiðni og hiti), vatnsgæðastöð, öldumælir og ADCP-straummælistöð. Öll gögn eru aðgengileg í gagnagátt Obscape (Data Portal).
Obscape
Festibúnaður hannaður fyrir öldubaujur Obscape: keðja úr ryðfríu stáli, Dyneema-lína og lóð og flot í línu. Akkeri fylgir ekki.
Obscape
Sami festibúnaður fyrir öldubaujur Obscape, með lausum lás úr ryðfríu stáli svo setja megi baujuna út á tveimur mismunandi dýpum. Akkeri fylgir ekki.
Obscape
Sólarknúin mælistöð fyrir leiðni, hitastig og seltu í rauntíma. Spanleiðninemi (toroidal) liggur beint í vatninu og 15 m nemakapall fylgir.
Obscape
Alþjóðlegt SIM-kort fyrir Obscape-tæki sem skiptir sjálfkrafa á milli farsímaneta og heldur sambandi þar sem merki er veikt. Inneign fylgir og kortinu er stjórnað í Obscape Data Portal.
Obscape
Sólarknúinn GPS-staðsetningarbúnaður fyrir baujur, báta og önnur verðmæti sem fljóta eða færast. Sendir staðsetningu, hraða og stefnu í Data Portal um farsímanet eða gervihnött.
Obscape
Þráðlaus, sólarknúin myndavél með 12,3 MP myndflögu sem tekur myndir með föstu millibili og sendir þær í Data Portal. Gerð fyrir langtímavöktun á breytingum sem gerast hægt.
Obscape
Þráðlaus, sólarknúin 5 MP myndavél sem sendir myndir með föstu millibili í Data Portal. Þarf hvorki rafmagn né nettengingu á staðnum.
Obscape
Sólarknúinn vatnshæðarmælir með þrýstinema undir yfirborði og gagnaskráningu ofan vatns. Sendir vatnshæð í rauntíma í Data Portal.
Obscape
Sólarknúinn ratsjárhæðarmælir sem mælir fjarlægð niður að vatnsborði ofan frá, allt að 40 m. Engir hlutar eru undir vatni.
Obscape
Létt öldubauja á rafhlöðum sem mælir ölduhæð, sveiflutíma, stefnu og sjávarhita og sendir gögnin um farsímanet í Data Portal. Alþjóðlegt SIM-kort fylgir, festibúnaður ekki.
Obscape
Sólarknúin öldubauja með siglingaljósi sem mælir stefnuháð ölduróf og sendir gögnin um farsímanet eða gervihnött í Data Portal. Þriggja mánaða gervihnattaáskrift með 5000 einingum fylgir, festibúnaður ekki.
Obscape
Felulitur á PTM-tæki svo það falli að umhverfinu þar sem það er sett upp. Fæst í ryð-, steypu- og gróðuráferð.
Obscape
Framlengingarfesting úr ryðfríu stáli sem heldur PTM-tæki frá burðarvirkinu, til dæmis á brúargólfi, hafnarbakka eða handriði.
Obscape
Lítil ytri sólarsella, 2 W og 6 V, fyrir PTM-tæki sem sett eru upp í skugga, til dæmis undir brú.
Obscape
Ytri sólarsella, 9 W og 6 V, sem tengist beint í PTM-tæki. Gefur aukaorku á norðlægum slóðum, í lítilli birtu og með orkufrekum nemum.
Obscape
Iridium-gervihnattaeining sett í PTM-tæki svo það sendi gögn hvar sem er. Tækið notar farsímanet þegar það næst og gervihnöttinn til vara.
Obscape
PTM (Power and Telemetry Module) er grunnur flestra Obscape-tækja: sólarsella, rafhlaða, gagnaskráning og fjarskipti í einu húsi. Þessi útgáfa tengist nema frá öðrum framleiðanda, til dæmis vatnsgæðamæli eða ADCP-straummæli.
Obscape
Þráðlaus, sólarknúinn regnmælir með veltifötu og 0,2 mm upplausn sem sendir úrkomu í rauntíma í Data Portal.
Obscape
Öldu- og sjávarfallamælir með þrýstinema undir yfirborði og sólarknúinni gagnaskráningu ofan vatns, fyrir hafnir, palla, bryggjur og hafnargarða.
Obscape
Öldu- og sjávarfallamælir með ratsjá sem mælir yfirborð sjávar beint ofan frá. Engir hlutar eru undir vatni og drægnin er 40 m.
Obscape
Sólarknúin öldumælieining sem fest er á bauju, pall eða skip og mælir ölduhæð, sveiflutíma og stefnu í rauntíma.
Obscape
Sólarknúin veðurstöð fyrir sjó, með AIRMAR 200WX nema, sem mælir lofthita, loftþrýsting, vindhraða og vindátt. Ytri sólarsella fylgir.
Obscape
Sólarknúin veðurstöð á landi með ATMOS 41 nema frá METER Group sem mælir vind, úrkomu, hita, raka, loftþrýsting, sólgeislun og eldingar.