Tecnos
Optískur súrefnisnemi frá Tecnos
Optískur súrefnisnemi fyrir vöktun og sjálfvirka súrefnisstýringu í kerjum og kvíum. Mælir með ljómun, nánast viðhaldsfrír, með útskiptanlegri hettu.

SmartOxy-handmælir með pH-nema og hitamælingu. Mælingar fara sjálfkrafa um Wi-Fi í vefgáttina FishControl.
Verð koma fram í tilboðinu sem við sendum þér.
Í þessum pakka fylgir SmartOxy pH-nemi með hitamælingu. Mælirinn greinir nemann sjálfur og pH-neminn er kvarðaður í tveimur punktum beint í mælinum.
SmartOxy er handhægur súrefnismælir með optískum súrefnisnema, gerður fyrir daglegar mælingar í kerjum og kvíum. Hann er vatnsheldur (IP67), höggþolinn og fer vel í hendi. Innbyggður loftþrýstingsnemi leiðréttir súrefnisgildið og seltu má stilla í mælinum.
Með hraðtengi og sjálfvirkri greiningu nema má tengja aðra nema frá Tecnos, svo sem pH, seltu, blaðgrænu og redox, og nota sama mælinn fyrir mörg mæligildi. Allar mælingar safnast þá í einn gagnagrunn.
Mælirinn er alveg þráðlaus: rafhlaðan hleðst á Qi-hleðslupúða, Wi-Fi sendir mælingar sjálfkrafa í vefgáttina FishControl og NFC-loftnet les merki við hvert ker svo mælingin vistast á réttum stað. Ef ekkert net er til staðar geymir mælirinn mælingarnar og sendir þær þegar samband næst. Í vefgáttinni má skoða mælingar eftir kerum og tækjum, í töflum og línuritum, og flytja þær út í Excel. Aðgangur að gáttinni fylgir mælinum.
Heimild: tæknilýsing framleiðanda.
Tecnos
Optískur súrefnisnemi fyrir vöktun og sjálfvirka súrefnisstýringu í kerjum og kvíum. Mælir með ljómun, nánast viðhaldsfrír, með útskiptanlegri hettu.
Tecnos
Galvanískur súrefnisnemi, sérhannaður fyrir fiskeldi og notaður í þúsundum eininga. Þvermál 40 mm, lengd 80 mm, kapall allt að 200 m.
Tecnos
Þráðlaus handmælir með optískum súrefnisnema: vatnsheldur (IP67), mælir súrefni og hitastig, tekur fleiri nema og sendir mælingar sjálfkrafa í vefgáttina FishControl.