Tecnos SmartOxy með seltu- og hitanema
Tecnos

Tecnos SmartOxy með seltu- og hitanema

SmartOxy-handmælir með seltunema og hitamælingu. Mælingar fara sjálfkrafa um Wi-Fi í vefgáttina FishControl.

  • Seltunemi með hitamælingu
  • Vatnsheldur (IP67) og höggþolinn
  • Sjálfvirk greining nema: pH, selta, blaðgræna, redox
  • Sendir mælingar sjálfkrafa um Wi-Fi í vefgáttina FishControl
  • NFC-merki auðkenna mælistað við hvert ker
  • Þráðlaus Qi-hleðsla, engin lok að opna

Verð koma fram í tilboðinu sem við sendum þér.

Í þessum pakka fylgir SmartOxy seltunemi með hitamælingu. Mælirinn greinir nemann sjálfur, svo sama tækið mælir seltu og, með súrefnisnema, súrefni.

SmartOxy er handhægur súrefnismælir með optískum súrefnisnema, gerður fyrir daglegar mælingar í kerjum og kvíum. Hann er vatnsheldur (IP67), höggþolinn og fer vel í hendi. Innbyggður loftþrýstingsnemi leiðréttir súrefnisgildið og seltu má stilla í mælinum.

Með hraðtengi og sjálfvirkri greiningu nema má tengja aðra nema frá Tecnos, svo sem pH, seltu, blaðgrænu og redox, og nota sama mælinn fyrir mörg mæligildi. Allar mælingar safnast þá í einn gagnagrunn.

Mælirinn er alveg þráðlaus: rafhlaðan hleðst á Qi-hleðslupúða, Wi-Fi sendir mælingar sjálfkrafa í vefgáttina FishControl og NFC-loftnet les merki við hvert ker svo mælingin vistast á réttum stað. Ef ekkert net er til staðar geymir mælirinn mælingarnar og sendir þær þegar samband næst. Í vefgáttinni má skoða mælingar eftir kerum og tækjum, í töflum og línuritum, og flytja þær út í Excel. Aðgangur að gáttinni fylgir mælinum.

  • Seltunemi með hitamælingu
  • Vatnsheldur (IP67) og höggþolinn
  • Sjálfvirk greining nema: pH, selta, blaðgræna, redox
  • Sendir mælingar sjálfkrafa um Wi-Fi í vefgáttina FishControl
  • NFC-merki auðkenna mælistað við hvert ker
  • Þráðlaus Qi-hleðsla, engin lok að opna

Meira frá Tecnos

Tecnos

Tecnos SmartOxy

Þráðlaus handmælir með optískum súrefnisnema: vatnsheldur (IP67), mælir súrefni og hitastig, tekur fleiri nema og sendir mælingar sjálfkrafa í vefgáttina FishControl.