ANB Sensors
ANB Sensors AQ2
Vörunúmer: AQ2 5m
Kvörðunarlaus pH- og hitanemi úr föstu efni, án glers. AQ2 kvarðar sig sjálfur í vatninu og hentar jafnt í ferskvatn sem sjó, í kerum, endurnýtingarkerfum og sjókvíum.
Vörunúmer: DCU/DVU1250
Niðursökkvanlegur breytir sem gerir stafrænt merki AQ2-nemans að 4 til 20 mA eða 0 til 5 V merki. Þolir 1250 m dýpi.
Verð koma fram í tilboðinu sem við sendum þér.
Kafbreytirinn situr á kaplinum milli AQ2-nemans og síritans eða stýrikerfisins og breytir stafrænu merki nemans í hliðrænt merki. Hann þolir 1250 m dýpi og fæst í tveimur gerðum: ACU gefur 4 til 20 mA straummerki og AVU gefur 0 til 5 V spennumerki.
Merkið spannar pH 2 til 10, svo að 10,3 mA svara til pH 5,15 og 2,8 V til pH 4,48. Breytirinn þarf aflgjafa og tengist hliðrænum inngangi fjarskiptaeiningar eða síritans. Hann er tengdur með SubConn-tengi eða föstum kapli.
Um RS-232-tengingu breytisins má sannreyna og uppfæra fastbúnað. Neminn byrjar að mæla eftir skipun úr anb_utils eða sjálfvirkt eftir forstilltri tímaáætlun þegar straumur kemst á.
Heimild: tæknilýsing framleiðanda.
ANB Sensors
Vörunúmer: AQ2 5m
Kvörðunarlaus pH- og hitanemi úr föstu efni, án glers. AQ2 kvarðar sig sjálfur í vatninu og hentar jafnt í ferskvatn sem sjó, í kerum, endurnýtingarkerfum og sjókvíum.
ANB Sensors
Vörunúmer: AQ2 50m
AQ2 pH-nemi fyrir allt að 50 m dýpi, með 1 m kapli. Sama kvörðunarlausa tækni og í AQ2 5m, fyrir dýpri mælingar.
ANB Sensors
Vörunúmer: AQ2 300m
AQ2 pH-nemi fyrir allt að 300 m dýpi, með 1 m kapli. Fyrir djúpar mælingar, baujur, legufæri og neðansjávartæki.