Tecnos
Optískur súrefnisnemi frá Tecnos
Optískur súrefnisnemi fyrir vöktun og sjálfvirka súrefnisstýringu í kerjum og kvíum. Mælir með ljómun, nánast viðhaldsfrír, með útskiptanlegri hettu.

OxyWiFi Plus fyrir tvö ker: tveir galvanískir súrefnisnemar, tveir segullokar og tveir flæðimælar.
Verð koma fram í tilboðinu sem við sendum þér.
OxyWiFi Plus er OxyWiFi-eining í samþjöppuðum kassa með segullokum og flæðimælum á súrefnislögninni, svo stýra má súrefnisgjöf í hvert ker beint frá einingunni. Kassarnir eru IP65 og segullokarnir eru opnir í hvíldarstöðu: ef rafmagn fer af heldur súrefnið áfram að flæða. Sjálfvirk súrefnisstýring heldur styrknum jöfnum og búnaðurinn gefur aðeins súrefni þegar þörf er á, sem sparar bæði súrefni og rafmagn.
OxyWiFi er sjálfstæð vöktunar- og stýrieining fyrir vatnsgæði í kerjum og kvíum. Einingin les gögn frá tengdum nemum, sýnir gildin á skjá og stýrir súrefnisgjöf og viðvörunum eftir mörkum sem notandinn setur.
Hver eining tengist um Wi-Fi við miðstöð og netið og mælingarnar fara í skýjagáttina FishControl. Þar má fylgjast með gildum í rauntíma, skoða sögu í línuritum, stilla viðvörunar- og stýrimörk fyrir loka, súrefnisbúnað og dælur og halda utan um viðvaranir. Gögnin eru einnig aðgengileg um API, til dæmis fyrir SCADA-kerfi, og hugbúnaðurinn fylgir kerfinu.
OxyWiFi getur líka stýrt fóðrurum og er til með segullokum og flæðimælum í samþjöppuðum kassa sem OxyWiFi Plus. Einingin er gerð til uppsetningar utandyra og gengur fyrir 220 V riðstraumi eða 12 V jafnstraumi, svo hana má tengja við varaaflgjafa (UPS).
Heimild: tæknilýsing framleiðanda.
Tecnos
Optískur súrefnisnemi fyrir vöktun og sjálfvirka súrefnisstýringu í kerjum og kvíum. Mælir með ljómun, nánast viðhaldsfrír, með útskiptanlegri hettu.
Tecnos
Galvanískur súrefnisnemi, sérhannaður fyrir fiskeldi og notaður í þúsundum eininga. Þvermál 40 mm, lengd 80 mm, kapall allt að 200 m.
Tecnos
Þráðlaus handmælir með optískum súrefnisnema: vatnsheldur (IP67), mælir súrefni og hitastig, tekur fleiri nema og sendir mælingar sjálfkrafa í vefgáttina FishControl.