Stálútgáfan af Telemetra-stólpanum er úr hágæða ryðfríu stáli, AISI 316, sem er spegilfægt og þolir sól og seltu. Hún er 40 x 20 x 100 cm og hentar höfnum sem vilja vandaðra útlit á bryggjunni.
Innvolsið er það sama og í plaststólpanum: allt að fjórir rafmagnstenglar og fjórir vatnskranar, einfasa frá 16 A upp í 63 A eða þriggja fasa frá 16 A upp í 250 A og meira. Stýriborð með WiFi og Bluetooth mælir notkun, segullokar stýra vatninu og MID-vottaðir mælar fást ef óskað er.
Enginn skjár og engir takkar eru á stólpanum. Bátseigandinn opnar fyrir rafmagn og vatn í BoatFeeder-appinu, sér notkunina og hleður inneign með greiðslukorti, og höfnin fylgist með öllu í hugbúnaði Telemetra.