BoatFeeder er appið sem bátseigandinn notar á bryggjunni. Það finnur sjálft stólpana í næsta nágrenni um Bluetooth. Notandinn velur stólpa, sér hvaða rafmagnstenglar og vatnskranar eru lausir, opnar fyrir þann sem hann vill og getur lokað aftur úr símanum.
Í appinu er sýndarveski fyrir lykla sem höfnin gefur út. Einn notandi getur geymt marga lykla, sett viðvörunarmörk fyrir hvern og skoðað sögu inneignar og notkunar eftir stólpum. Inneign er hlaðin á netinu með greiðslukorti, svo ekki þarf að fara á skrifstofu hafnarinnar.
Á stólpanum virkar appið án nettengingar. Að heiman sér bátseigandinn stöðuna um internetið og fær tilkynningar ef inneign er að klárast, ef öryggi slær út eða ef svikavörn lokar fyrir. Aðrir geta fylgst með í gestaham og lyklar geta haft mismunandi hlutverk, svo sem notandi, umsjónarmaður og uppsetningarmaður.