AquaLabo
AquaLabo NEON OPEN með OPTOD-súrefnisnema, 3 m
Vörunúmer: NC-POR-C-00308
Handhægur súrefnismælir fyrir fiskeldi: NEON OPEN með OPTOD-súrefnisnema úr ryðfríu stáli á 3 m kapli, burðartösku og natríumsúlfíti til kvörðunar.

Vörunúmer: PF-CAP-C-00160
DIGISENS er lína stafrænna nema frá AquaLabo fyrir súrefni, pH, ORP, leiðni, seltu og grugg. Allir nemarnir tala Modbus RS-485 og geyma kvörðunina í sjálfum sér.
Verð koma fram í tilboðinu sem við sendum þér.
DIGISENS-nemarnir frá AquaLabo (áður PONSEL Mesure) eru smíðaðir í Frakklandi og byggja á yfir 50 ára reynslu af smíði nema. Í línunni eru meðal annars OPTOD-súrefnisnemi, C4E-leiðni- og seltunemi, PHEHT og pHT pH-nemar, EHAN ORP-nemi og NTU-gruggnemi.
Formögnun og stafræn merkjavinnsla eru í sjálfum nemanum. Kvörðunarstuðlar, saga og notendaupplýsingar eru vistaðar þar, svo hægt er að kvarða nema á einum stað og tengja hann annars staðar án nýrrar kvörðunar.
Sömu nemar tengjast ACTEON-mælisendum, ODEON og NEON-handmælum og hvaða iðntölvu eða gagnaskráningu sem er með Modbus RS-485 eða SDI-12 inntak. Nemarnir fást með 3, 7, 15 eða 30 m kapli og í sérlengdum, með lausum vírendum eða vatnsþéttu Fischer-tengi.
Heimild: tæknilýsing framleiðanda.
AquaLabo
Vörunúmer: NC-POR-C-00308
Handhægur súrefnismælir fyrir fiskeldi: NEON OPEN með OPTOD-súrefnisnema úr ryðfríu stáli á 3 m kapli, burðartösku og natríumsúlfíti til kvörðunar.
AquaLabo
Vörunúmer: DIVNEG
Tvíþætt mælieining með C4E-leiðni- og seltunema og OPTOD-súrefnisnema úr títani, á 30 m kapli með Fischer-tengi. Gerð fyrir mælingar á dýpi í sjókvíum.
AquaLabo
Vörunúmer: PF-CAP-C-00168
Stafrænn optískur súrefnisnemi í ryðfríu stáli 316L með 7 m kapli og lausum vírendum. Sterkbyggður nemi fyrir flest fiskeldisverkefni.