AquaLabo
AquaLabo DIGISENS
Vörunúmer: PF-CAP-C-00160
DIGISENS er lína stafrænna nema frá AquaLabo fyrir súrefni, pH, ORP, leiðni, seltu og grugg. Allir nemarnir tala Modbus RS-485 og geyma kvörðunina í sjálfum sér.

Vörunúmer: PF-CAP-C-00168
Stafrænn optískur súrefnisnemi í ryðfríu stáli 316L með 7 m kapli og lausum vírendum. Sterkbyggður nemi fyrir flest fiskeldisverkefni.
Verð koma fram í tilboðinu sem við sendum þér.
OPTOD er stafrænn súrefnisnemi úr DIGISENS-línu AquaLabo sem mælir uppleyst súrefni með ljómunartækni. Engin himna eða raflausn er í nemanum og hann eyðir ekki súrefni, svo mælingin er stöðug og nákvæm líka þegar súrefni er mjög lítið og vatnshreyfing engin. Aðferðin er viðurkennd samkvæmt ASTM D888-05.
Neminn geymir kvörðun og sögu í eigin rafeindabúnaði og tengist beint við iðntölvur, gagnaskráningu og mælisenda um opið Modbus RS-485 eða SDI-12. Orkunotkun er mjög lítil, sem hentar bæði í fasta vöktun og lengri mæliherferðir.
Eina reglulega viðhaldið er að skipta um DODISK-skynjaraskífuna, sem endist að jafnaði í um 2 ár. Skífan er í hlífðarsíu sem skrúfuð er framan á nemann.
Þessi útgáfa er með húsi úr ryðfríu stáli 316L með passíveringu og 7 m kapli með lausum vírendum til tengingar við mælisendi eða iðntölvu.
Heimild: tæknilýsing framleiðanda.
AquaLabo
Vörunúmer: PF-CAP-C-00160
DIGISENS er lína stafrænna nema frá AquaLabo fyrir súrefni, pH, ORP, leiðni, seltu og grugg. Allir nemarnir tala Modbus RS-485 og geyma kvörðunina í sjálfum sér.
AquaLabo
Vörunúmer: NC-POR-C-00308
Handhægur súrefnismælir fyrir fiskeldi: NEON OPEN með OPTOD-súrefnisnema úr ryðfríu stáli á 3 m kapli, burðartösku og natríumsúlfíti til kvörðunar.
AquaLabo
Vörunúmer: DIVNEG
Tvíþætt mælieining með C4E-leiðni- og seltunema og OPTOD-súrefnisnema úr títani, á 30 m kapli með Fischer-tengi. Gerð fyrir mælingar á dýpi í sjókvíum.