AquaLabo
AquaLabo DIGISENS
Vörunúmer: PF-CAP-C-00160
DIGISENS er lína stafrænna nema frá AquaLabo fyrir súrefni, pH, ORP, leiðni, seltu og grugg. Allir nemarnir tala Modbus RS-485 og geyma kvörðunina í sjálfum sér.

Vörunúmer: PF-FIX-C-00095
Fjölrása stafrænn mælisendir fyrir fjóra DIGISENS-nema og einn nema frá öðrum framleiðanda, með 7 tommu snertiskjá og allt að 12 mæligildum.
Verð koma fram í tilboðinu sem við sendum þér.
ACTEON 6000 tekur allt að fjóra DIGISENS-nema á Modbus RTU neti og einn stillanlegan Modbus-nema á öðru neti, auk tveggja hliðrænna inntaka fyrir nema frá öðrum framleiðendum. Þannig má safna súrefni, pH, ORP, leiðni, seltu og gruggi á einn stað og bæta við til dæmis klór, nítrati eða ammoníaki.
Fjögur 0/4 til 20 mA úttök og fjórir forritanlegir liðar stýra loftun, hreinsibúnaði og viðvörunum. Mælisendirinn talar Modbus RTU og Ethernet TCP/IP, skráir gögn og flytur þau út í CSV á USB-lykil, og innbyggður loftþrýstingsnemi leiðréttir súrefnismælingu.
Tækið gengur fyrir 10 til 28 V DC; fyrir 100 til 240 V net fæst sérstakur aflgjafi (PF-ACC-C-00304). Húsið er úr pólýkarbónati og vatnsþétt samkvæmt IP65.
Heimild: tæknilýsing framleiðanda.
AquaLabo
Vörunúmer: PF-CAP-C-00160
DIGISENS er lína stafrænna nema frá AquaLabo fyrir súrefni, pH, ORP, leiðni, seltu og grugg. Allir nemarnir tala Modbus RS-485 og geyma kvörðunina í sjálfum sér.
AquaLabo
Vörunúmer: NC-POR-C-00308
Handhægur súrefnismælir fyrir fiskeldi: NEON OPEN með OPTOD-súrefnisnema úr ryðfríu stáli á 3 m kapli, burðartösku og natríumsúlfíti til kvörðunar.
AquaLabo
Vörunúmer: DIVNEG
Tvíþætt mælieining með C4E-leiðni- og seltunema og OPTOD-súrefnisnema úr títani, á 30 m kapli með Fischer-tengi. Gerð fyrir mælingar á dýpi í sjókvíum.