Tecnos
Optískur súrefnisnemi frá Tecnos
Optískur súrefnisnemi fyrir vöktun og sjálfvirka súrefnisstýringu í kerjum og kvíum. Mælir með ljómun, nánast viðhaldsfrír, með útskiptanlegri hettu.

OxyBuoy-stöðin án flotholts: sólarsella, rafhlaða, optískur súrefnis- og hitanemi og gagnasending um farsímanet, til festingar á kví eða annað burðarvirki.
Verð koma fram í tilboðinu sem við sendum þér.
Þessi útgáfa er sama stöð og OxyBuoy en án flotholts, og er fest á kví eða annað burðarvirki sem fyrir er.
OxyBuoy er sjálfstæð vöktunarstöð fyrir vatnsgæði sem þarf enga uppsetningu: hún er sett út á svæðið sem á að vakta. Stöðin er á traustri stálgrind með 10 W sólarsellu og 6,6 Ah litíumrafhlöðu sem dugar til mælinga í allt að 10 daga án sólarljóss.
Í grunnútgáfu er optískur súrefnisnemi af mikilli nákvæmni, leiðréttur fyrir þrýstingi með innbyggðum nema. Örgjörvastýrt kerfi í vatnsþéttum kassa safnar gögnum frá nemunum og sendir þau beint á netið um GSM/GPRS farsímanet eða Wi-Fi, með sendingartíðni sem má stilla frá miðstöð. Kerfið má stækka eftir þörfum.
Gögnin fara í miðlægan gagnagrunn FishControl. Þar sjást allar stöðvar samtímis á korti með GPS-staðsetningu, mæligildi hverrar stöðvar, saga í línuritum og töflum og viðvaranir þegar gildi fara út fyrir mörk eða gögn hætta að berast. Hægt er að tengja fjölnema fyrir pH, seltu, blaðgrænu, redox, grugg, ammoníak og heildarmagn uppleystra lofttegunda.
Heimild: tæknilýsing framleiðanda.
Tecnos
Optískur súrefnisnemi fyrir vöktun og sjálfvirka súrefnisstýringu í kerjum og kvíum. Mælir með ljómun, nánast viðhaldsfrír, með útskiptanlegri hettu.
Tecnos
Galvanískur súrefnisnemi, sérhannaður fyrir fiskeldi og notaður í þúsundum eininga. Þvermál 40 mm, lengd 80 mm, kapall allt að 200 m.
Tecnos
Þráðlaus handmælir með optískum súrefnisnema: vatnsheldur (IP67), mælir súrefni og hitastig, tekur fleiri nema og sendir mælingar sjálfkrafa í vefgáttina FishControl.